Ylur ætlar að hraða og auðvelda uppbyggingu nýrra hátæknigróðurhúsa um allan heim. Lausnin okkar svarar öllum helstu spurningum er varða byggingu og rekstur nýrra gróðurhúsa þar sem notast er við nýjustu tæknilausnir og gervigreind til ræktunar og auðlindastýringar.

Lögð er áhersla á hringrásarhagkerfið og nýtingu glatvarma og koltvísýrings beint frá jarðvarmavirkjun eða orkufrekum iðnaði til að lágmarka kolefnisspor ræktunarinnar en um leið er fundin hagkvæmasta lausnin miðað við aðstæður hverju sinni.